Hvað er uppi fallega fólk ? :)

Birna Sif

31.12.2007 00:50:07 / biddz

Ekkert Rafmagn og maður hálf domm eitthvað hehe

Jæja people.. Héðan er allt fínt að fretta þannig seð. Ég sit hér í kertaljósi og rómatík að skrifa þetta blogg..Hér á Egilsstöðum er allt rafmagnslaust..Brjálað rok og rigning..Ég hef nú bara aldrei vitað annað eins herna, ekki upplifað svona veður hér sem ég man eftir.. Rafmagnið búið að detta 2 sinnum út, svo skrapp min í Kaufó að versla, Nei Nei.Þá slo öllu rafmagni aftur út og er það ekki enn komið inn...Meira en 2 klukkutímar síðan.. Sitjum hér við kertaljós og kosyheit bara, að bíða eftir að rafmagnið komi aftur inn...Pissa í myrkri er ekki spes...hehehe.... En jájájá, þetta kemur allt saman.. Á meðan að allir eru óhultir í svona ofsveðri þá er maður sáttur... J Samt er alveg ótrúlegt hvað maður er háður rafmagni ef maður pælir i því... Maður veit ekki alveg hvað maður a að gera af sér í svona...Maður þorir ekki út aftur..Ég keyrði alveg eins og mús tilbaka úr kaufó þar sem allur bærinn var bara svartur.. SPES.....  En annars er maður nú búinn að hafa það heavy næs hérna heima í sveitinni.. J Jólin eru yndislegur timi.. Love it... Fór niðra Djúpavog til Pabba,Arnfinns bróðirs og Lucky og var þar eina nótt.. Áttum alveg yndislegann tíma saman... Ég get sagt ykkur það að Lucky MINN (hehe) er sko búinn að stækka, Hendi inn myndum af honum síðar.. J   Alveg awsome hundur, mig langaði að taka hann með mér aftur heim...En svona er þetta nú... Hann á gott heimili.. J   Svo i gær hittist öll familyan og var hið árlega spilakvöld haldið,Félagsvist spiluð a 6 borðum.. Eitt það skemmtilegasta við jólin einmitt, þegar öll fjölskyldan hittist og spilar saman.. J Að þessu sinni var þetta haldið heima hjá Sigga & Sunnevu í nýja flotta husinu þeirra, og úff, veitingarnar a þeim bæ voru sko ekki af verri kanntinum. J maður soleiðis at yfir sig þarna..hehe..Græðgin alltaf eins í manni..Hehe... Halla,Halli & co komu meiraðsegja að norðan til að vera með okkur þetta kvöld og dribbuðu sig svo aftur norður eftir spilið..Svo stóð nattla uppi sigurvegari og tossi.. Enda bara gaman að þvi..Verðlauna afhending og alles...Jáhá, þetta er alvöru sko... Bwahahaha.... En jæja, tölvan varð batt laus og náttla ekkert rafmagn til að blugga hana í, en nú er allt komið í rettar horfur hér a Egs.. J Buið að rigna eins og mófo og allur snjór uuuu farinn.. L   Ég man nú ekkert hvað ég ætlaði að blogga meira um en það var eflaust eitthvað ferlega gott sko. J En ég er nú alveg dottin ur gírnum og ætla að dribba mig í háttinn bara, enda vinna kl 8 í fyrramálið í þessum blessaða Söluskála... Jæja, Kveð í bili allavegana. J

Ef mín bloggar nú ekkert á morgunn, þá vil ég nú bara segja,

 GLEÐILEGT NÝTT ÁR OG TAKK FYRIR ÞAÐ GAMLA J og farið nú varlega á gamlárskvöld dúllurnar mínar. Later. Birna Sif M...

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.12.2007 04:28:33 / biddz

Desember 2007....

Hæhæ, það er nú langt síðan maður hefur bloggað og kannski kominn tími til að vekja þessa síðu örlítið.. :)  Það er búið að vera frekar mikið að gera og gerast hjá mér síðust tvo mánuði,sem er ekker verra svosem en fyrr má nú vera, hehe... Ég er búin að flytja tvisvar sinnum, reyndar bæði skiptin í sama mánuðinum, hahaha, en held að það sé komið- gott í bili allavega, er komin i mjög fina ibúð í hverfi sem er gott að vera í...Og jamms, ég bý ein.. :)  totally næs.. Miklar breytingar búnar að vera í vinnunni líka, komnar með kokkana sem voru á Pengs til okkar og það er alveg nóg að gera núna, en eins og er,er ég fyrir austann hjá familyunni minni.. :) í svokölluðu jólafríi..En get nú eitthvað minna kallað þetta það..Því ég kann ekki að segja nei...!!!  Eg er soldið mikið að vinna, var að vinna til tæplega 4 á aðfangadag og er annan í jólum líka og gamlársdag og much much more..... sæll sko....En jæja nóg um þetta tuð, ég ætlaði nu einfaldlega bara að segja hæ hæ og óska ykkur öllum GLEÐILEGRA JÓLA. :) blogga later svona um daginn og veginn.. 

HAFIÐ ÞAÐ SEM ALLRA BEST UM JÓLIN.

JÓLAKVEÐJA AÐ AUSTANN.

Birna Sif M.    


» 6 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 27 desember
Styttis í langþráða Brottför
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 550 dögum
sólarsæla erlendis
Mynd af moi :)
Birna Sif
Ég er 28 ára Egilsstaðamær og bý á Akureyri og Egilsstöðum .Ef þú vilt vita e-ð meir og ert ekki algert nutcase, hehe, þá er msnið mitt : birnasif79@hotmail.com.og Myspace.com/sibba79
Kíki Stundum Inná...