Jæja, bara blogg frá minni...hehe... en svona er þetta,... það er búið að vera nóg að gera hjá manni og endalaust flakk.. Er búin að vera meira á hoteli en heima hjá mér síðustu vikur...

sem er ekkert slæmt svosem, en æj, alltaf jafn leiðinlegt að búa í tösku... En það eru nú samt svo magnaðir hlutir sem maður er að upplifa og læra margt nýtt og nytsamlegt.

alveg geggjað

Mig langar nú að þakka ykkur fyrir stuðninginn í þættinum Bandið Hans Bubba..

Ekkert slæmt að vera komin í 5 manna úrslit sko.

ég er alveg ferlega ánægð með það , og var nú reyndar ánægð með að hafa komist í 10 manna úrslitin, svo þetta er bara bónus..

Enmaður gerir sitt besta og um að gera að hafa gaman af þessu og nýta þetta tækifæri til hins ýtrasta..

En af mér er annars allt gott að frétta sosum, pínu þreyta í manni, sem er kannski ekkert skrítið. hehe... Ég er núna stödd á Djúpavogi hjá Pabba mínum.. Svo er Arnfinnur bróðir þar líka.. Og tja, ég má nú ekki gleyma að hann LUCKY MINN er hér líka..

hehehehe.... Hann stækkar og stækkar.. Og gott að sjá hvað honum líður rosa vel hérna hjá AFA sínum....BWahahahaha.....En svona er þetta nú,.. Ég verð hér heima í "sveitinni" í nokkra daga og mun hafa það rosa næs hjá fjölskyldunni , eins og alltaf..

En jæja, mín bara að láta vita af sér og segja ykkur að ég er nú ekki búin að gleyma ykkur

Langt frá því...

Annars fer ég nú að klára myspeis síðuna mína við tækifæri..

Þegar ég hef tíma það er að segja.

Wllywell,
hafið það sem allra best, i know i will...
knúsiknús
Birna Sif.